Hide

Problem C
Landsreisa

Languages en is

Stefán og Eva búa í Vestmannaeyjum. Hún Eva vil sjá allt landið. Ætla þau því að heimsækja hvern einasta stað landsins nákvæmlega einu sinni og enda svo aftur heima í Vestmannaeyjum. Stefán hatar að ferðast og vill því verja sem minnstum tíma að ferðast á milli staða. Ef Stefán er of lengi að ferðast verður hann önugur og fer það í taugarnar á Evu. Eva vil hafa Stefán í góðu skapi og hefur beðið um hjálp þína við að hanna ferðaáætlun. Því styttri sem ferðaáætlunin þín er því ánægðari verður Stefán.

Byrjunarstaður Stefáns og Evu er staður númer 0. Þau ferðast alltaf jafn hratt á milli staða. Hægt er að ferðast milli allra para staða í báðar áttir. Upp á einfaldleika er heimurinn tvívíður, þar sem hverri lengdargráðu hefur verið breytt í x gildi og hverri breiddargráðu hefur verið breytt í y gildi. Vegna þess að heimurinn er tvívíður er notast við evklíðska vegalengd.

Inntak

Inntakið í þessu verkefni er ekki leynilegt eins og í öðrum dæmum, heldur er hægt að nálgast það hér.

Fyrsta línan inniheldur heiltölu n, fjölda staða. Næst koma n línur. Hver lína inniheldur tvær rauntölur x og y, þar sem 25x13 og 63y67. Lína i táknar staðsetningu staðar i. Tölurnar eru mesta lagi með 4 aukastafi.

Hér að neðan má sjá mynd af uppgefnu inntaki.

Úttak

Skrifið út ferðaplanið í einni línu með n tölum, aðskilnar með bili, þar sem hver tala á bilinu 0 uppí n1 kemur fyrir nákvæmlega einu sinni. Tölurnar skulu tákna í hvaða röð staðirnir eru heimsóttir. Fyrsta talan skal alltaf vera 0.

Stigagjöf

Stig eru gefin sem heiltala 0x100. Ef lengd ferðaáætlun þinnar er k þá er x=100(1k63100)4.

/problems/landsreisa/file/statement/is/img-0001.png
Staðirnir á Íslandi
Hide

Please log in to submit a solution to this problem

Log in