Hide

Problem A
Frumtölutalning

Languages en is
/problems/frumtolutalning/file/statement/is/img-0001.jpg
Prime Numbers eftir geralt, Pixabay
Heiltala p er frumtala ef hún er stærri en 1 og það er aðeins hægt að deila henni með 1 og p án þess að fá afgang. Til dæmis er 10 ekki frumtala þar sem það er hægt að deila henni með 1, 2, 5 og 10 án þess að fá afgang. Aftur á móti er 11 frumtala þar sem það er bara hægt að deila henni með 1 og 11 án þess að fá afgang. Á sama hátt sjáum við að 2, 3 og 17 eru frumtölur, en 4, 9 og 15 eru ekki frumtölur.

Ef maður skoðar tölurnar á bilinu 1 upp í 100 þá getur maður séð að 25 þeirra eru frumtölur. Með aðeins meiri handavinnu er hægt að komast að því að það eru hvorki meira né minna en 168 frumtölur á bilinu 1 upp í 1000.

Gefnar tvær heiltölur a og b, reiknaðu hvað það eru margar frumtölur á bilinu a upp í b.

Inntak

Inntak er ein lína með tveimur heiltölum a og b (1ab).

Úttak

Skrifið út fjölda frumtala á bilinu a upp í b.

Stigagjöf

Hópur

Stig

Takmarkanir

1

19

b103

2

23

b109, ba103

3

14

b1018, ba105

4

13

b107

5

16

b1015, ba107

6

15

b1011

Sample Input 1 Sample Output 1
1 100
25
Sample Input 2 Sample Output 2
3 5
2
Sample Input 3 Sample Output 3
42 1337
204
Hide

Please log in to submit a solution to this problem

Log in