Problem D
Mæting
Languages
en
is
Nú þarf að taka saman mætingu nemenda í ÁFLV yfir önnina til að sjá hverjir voru með bestu mætinguna.
Inntak
Fyrsta lína inntaksins inniheldur heiltölu $n$, fjölda nemenda í áfanganum. Næst fylgja $n$ línur, hver með nafni á nemenda. Sérhvert nafn inniheldur aðeins enska há- og lágstafi með engum bilum, og hvert nafn er mest $20$ stafir. Næst kemur ein lína með heiltölu $m$, fjöldi kennslustunda. Næst koma $m$ línur, hver lýsir mætingu í eina kennslustund. Hver lína sem lýsir kennslustund byrjar á heiltölu $0 \leq k \leq n$, fjöldi nemenda sem mætti í þann tíma. Svo, á sömu línu, koma nöfn þeirra sem mættu í þann tíma með bili á milli nafna. Heildarlengd allra nafna í inntaki er mest $10\, 000$. Engir tveir ólíkir nemendur eru með sama nafn.
Úttak
Fyrir hvern nemenda skal prenta eina línu með fjöldi tíma sem sá nemandi mætti í, ásamt nafni nemandans með bili á milli. Prenta skal nemendurna í lækkandi röð eftir fjölda mætinga. Innbyrðis röð milli nemenda sem mættu jafn oft skiptir ekki máli.
Stigagjöf
Hópur |
Stig |
Takmarkanir |
1 |
30 |
$n = 1$, $1 \leq m \leq 100$ |
2 |
30 |
$1 \leq n \leq 100$, $m = 1$ |
3 |
40 |
$1 \leq n \leq 100$, $1 \leq m \leq 100$ |
Sample Input 1 | Sample Output 1 |
---|---|
5 Jormunrekur Grimmhildur Hrollleifur Hneitir Gudrun 4 3 Hneitir Gudrun Jormunrekur 3 Gudrun Grimmhildur Hrollleifur 0 1 Gudrun |
3 Gudrun 1 Jormunrekur 1 Hrollleifur 1 Hneitir 1 Grimmhildur |