Hide

Problem E
Skattaskrattar

Languages en is
/problems/skattaskrattar/file/statement/is/img-0001.jpg
Mynd fengin af flickr
Þegar fólk vinnur sér inn laun þá þarf það að borga tekjuskatta af laununum til ríkisins. Til að reikna hversu mikla skatta á að borga þá er laununum skipt upp í mismunandi skattaþrep, sem ríkið gefur út, en á hverju þrepi þarf að borga ákveðna prósentu af laununum sem falla inn á það skattþrep.

Tökum dæmi, og segjum að það séu þrjú skattþrep:

Þrep

Laun

Skattprósenta

1

0 kr. – 1000 kr.

40%

2

1000 kr. – 5000 kr.

30%

3

5000 kr. og meira

50%

Gefum okkar svo að manneskja fái 3000 kr. í laun. Þessi laun falla alveg yfir fyrsta þrepið (1000 kr. á því þrepi), og að hluta til yfir annað þrepið (2000 kr. á því þrepi). Manneskjan borgar því 40% af fyrstu 1000 krónunum af laununum, og svo 30% af næstu 2000 krónunum af laununum. Samtals verða það því 0.41000+0.32000=1000 krónur sem manneskjan þarf að borga.

Ef manneskjan hefði aftur á móti fengið 5500 kr. í laun, þá hefðu launin alveg fallið yfir fyrsta þrepið (1000 kr. á því þrepi), alveg yfir annað þrepið (4000 kr. á því þrepi), og að hluta til yfir þriðja þrepið (500 kr. á því þrepi). Samtals verða það því 0.41000+0.34000+0.5500=1850 krónur sem manneskjan þarf að borga.

Árið er 3020, og þó skýjakljúfar standi stoltir um Reykjavík og fljúgandi bílar leggi í svifbílastæði gegn vægu gjaldi, þá er enn í notkun sama skattakerfið. Skattþrepin eru þó orðin aðeins fleiri, eða n talsins. Fyrsta skattþrepið gildir frá 0 upp í a1 krónur, annað skattþrepið frá a1 upp í a2 krónur, og svo framvegis upp í skattþrep númer n sem gildir frá an1 krónum og uppúr. Á fyrsta skattþrepinu þarf að borga p1% skatta, á öðru skattþrepinu p2% skatta, og svo framvegis upp í skattþrep númer n þar sem þarf að borga pn% skatta.

Forseti Íslands hefur verið að íhuga hvernig skattþrepin fyrir árið 3021 eiga að líta út. Hann er kominn með hugmynd að m skattþrepum, og er þeim lýst eins og að ofan nema að skattþrepin eru táknuð með bi í stað ai, og skattprósenturnar eru táknaðar með qi í stað pi. Ef þessi skattþrep skildu vera notuð á næsta ári, þá hefur Forseti Íslands beðið þig að finna öll þau laun sem hann getur greitt starfsfólki sínu þannig að það borgi jafn mikinn skatt árið 3020 og 3021. Laun geta verið hvaða rauntölur sem eru, svo lengi sem þær séu ekki neikvæðar, en skattþrepin eru alltaf jákvæðar heiltölur.

Inntak

Fyrsta lína inntaksins inniheldur tvær heiltölur n og m (1n,m105), fjöldi skattþrepa árið 3020 og 3021.

Næst koma n línur sem tákna skattþrepin árið 3020. Fyrstu n1 línurnar innihalda tvær jákvæðar heiltölur pi og ai. Síðan kemur ein lína með einni heiltölu pn. (0<pi<100 fyrir öll i)

Svo koma m línur sem tákna skattþrepin árið 3021. Fyrstu m1 línurnar innihalda tvær jákvæðar heiltölur qi og bi. Að lokum kemur ein lína með einni heiltölu qm. (0<qi<100 fyrir öll i)

Skattþrepin eru gefin í hækkandi röð, þ.e. ai<ai+1 og bi<bi+1, og ekkert skattþrep fer yfir 105 krónur, þ.e. an1,bm1105.

Úttak

Úttakið skal innihalda öll þau laun sem borga sama skatt í báðum skattkerfunum, í hækkandi röð. Ef laun x borga sama skatt í báðum skattkerfum er gefið að engin laun á bilinu [x104,x+104] borgi líka sama skatt í báðum skattkerfum.

Úttakið er talið rétt ef hver tala er annaðhvort nákvæmlega eða hlutfallslega ekki lengra frá réttu svari en 104. Þetta þýðir að það skiptir ekki máli með hversu margra aukastafa nákvæmni tölurnar eru skrifaðar út, svo lengi sem þær er nógu nákvæmar.

Stigagjöf

Hópur

Stig

Takmarkanir

1

40

n,m103

2

60

Engar frekari takmarkanir

Sample Input 1 Sample Output 1
3 2
40 1000
30 5000
50
20 500
80
0.000000000000000
750.000000000000000
Sample Input 2 Sample Output 2
2 3
71 14
42
43 5
6 49
20
0.000000000000000
Sample Input 3 Sample Output 3
5 5
86 874
10 2170
18 5738
99 5891
76
98 497
31 3229
75 7670
58 8394
60
0.000000000000000
605.436363636363581
1577.380952380952294
17815.375000000003638
Hide

Please log in to submit a solution to this problem

Log in