Problem E
Rust
Languages
en
is
Benni er nýbyrjaður að spila leikinn Rust. Þetta er
gífurlega spennandi leikur fullpakkaður af hasari. Í Rust er
samt líka hægt að byggja. Benni er búinn að vera allan dag að
safna steinum til að geta búið til sitt eigið heimili. Hann
hefur ákveðið að búa til ferningslaga múr að stærð $K \times K$.
Benni gerði sér aldrei grein fyrir því að það yrði erfitt að
velja stað til að búa til heimilið sitt. Benni hefur kort af
stærð $N \times N$. Á því
má sjá steina sem ekki er hægt að brjóta og eru þeir táknaðir
sem # á kortinu. Einnig eru verðmæti
á kortinu en þau eru táknuð með tölu á bilinu $1$ til $9$. Ef Benni ákveður að byggja þennan
ferningslaga múr sinn þá má ekki vera neinn óbrjótanlegur
steinn á svæðinu sem múrinn verður byggður á né verðmæti.
Hinsvegar má múrinn liggja utan um óbrjótanlega steina eða
verðmæti. Ef Benni býr til múr sem umlykur verðmæti þá mun hann
eignast öll verðmætin sem eru innan fyrir múrinn.
Benni hefur ekki hugmynd hvar hann ætti að byggja múrinn sinn. Hann spyr þig hvort þú getir sagt honum hvað mesta virði samanlagðra verðmæta væri sem hann gæti átt ef hann myndi byggja múrinn sinn á sem besta stað.
Inntak
Fyrsta línan í inntakinu inniheldur tvær heiltölur $N$ ($5 \leq N \leq 1\, 000$), stærð kortsins, og $K$ ($3 \leq K \leq N$), stærð múrsins sem Benni ætlar að byggja.
Næst koma $N$ línur, hver lína hefur $N$ stök. Á kortinu má sjá #, sem táknar óbrjótanlega steina, . sem táknar tóman reit og einnig má sjá tölur á bilinu $1$ til $9$ sem tákna verðmæti, þar sem talan táknar hversu mikils virði þetta verðmæti er.
Úttak
Skrifa skal út eina tölu, mesta virði samanlagðra verðmæta sem Benni gæti átt ef hann byggir múrinn sinn á sem besta stað. Ef enginn staður kemur til greina, þá skal skrifa út töluna $0$.
Stigagjöf
Hópur |
Stig |
Takmarkanir |
1 |
23 |
$K = 3$ |
2 |
27 |
$N \leq 50$ |
3 |
50 |
Engar frekari takmarkanir. |
Sample Input 1 | Sample Output 1 |
---|---|
5 3 ..... .5.7. ...#. .9... 2.... |
5 |
Sample Input 2 | Sample Output 2 |
---|---|
5 5 ..... .333. .333. .333. ..... |
27 |
Sample Input 3 | Sample Output 3 |
---|---|
5 5 ....# .333. .333. .333. ..... |
0 |