Hide

Problem C
Pönnukökur

Languages en is

Signý er að baka pönnukökur. Pönnukökurnar hafa tvær hliðar, hlið 0 og hlið 1, og liggja þær í röð. Því er hægt að tákna hvaða hlið snýr upp með tvíundarkerfinu. Upprunalega snýr hlið 0 upp. Stundum þegar hún bakar pönnukökurnar þá snýr hún þeim. Ef hún snýr pönnuköku sem snýr hlið 0 upp þá eftir snúninginn mun hlið 1 snúa upp og öfugt. Signý er pínu sérstök og hún vil vita hversu margar pönnukökur snúa hlið 1 upp á sérstöku bili. Þú átt að fylgjast með snúningum Signýjar og svara spurningum hennar.

Inntak

Fyrsta línan inniheldur tvær heiltölur n og q, fjölda pönnukaka og fjölda aðgerða. Næst koma q línur þar sem hver lína lýsir einni aðgerð. Það eru fjórar tegundir af aðgerðum, fyrsta heiltalan í hverri línu segir af hvaða tegund aðgerðin er.

  • Signý snýr pönnuköku i. Inntakið er á forminu 1 i, þar sem 1in.

  • Signý snýr öllum pönnukökunum. Inntakið er á forminu 2.

  • Signý spyr hversu margar pönnukökur snúa hlið 1 upp. Inntakið er á forminu 3.

  • Signý spyr hversu margar pönnukökur snúa hlið 1 upp frá pönnuköku l að pönnuköku r. Inntakið er á forminu 4 l r.

Úttak

Fyrir hverja spurningu skaltu skrifa út eina línu með einni heiltölu, svarið við spurningunni. Svör skulu koma í sömu röð og spurningarnar sem þau svara.

Stigagjöf

Hópur

Stig

Inntaks takmarkanir

1

20

1n,q2105 bara aðgerðir af tegund 1 og 3

2

14

1n,q2105 bara aðgerðir af tegund 1,2 og 3

3

30

1n,q1000 allar tegundir af aðgerðum

4

36

1n,q2105 allar tegundir af aðgerðum

Sample Input 1 Sample Output 1
3 7
1 1
3
1 2
3
1 3
1 2
3
1
2
2
Sample Input 2 Sample Output 2
2 5
3
1 1
2
3
3
0
1
1
Sample Input 3 Sample Output 3
9 6
3
2
2
1 9
4 2 9
3
0
1
1
Hide

Please log in to submit a solution to this problem

Log in