Hide

Problem F
Úllen dúllen doff

Languages en is

Stefán Valur Hansson, einnig þekktur sem Svalur Handsome, er að fara í æsispennandi ferðalag og getur tekið einn vin með sér. Hann vill ekki særa þá vini sem hann velur ekki þannig hann ákveður að nota þulu til þess að velja af handahófi hver fer með honum. Hann biður alla $n$ vini sína að hitta sig og raða sér upp. Hann byrjar að benda á vin sinn sem er fyrstur í röðinni frá vinstri hönd og þylur fyrsta orðið í þulunni. Fyrir hvert orð sem hann þylur færir hann fingur sinn og bendir á næsta vin sinn til hægri. Ef hann klárar alla röðina áður en þulan er þulin þá bendir hann aftur á vin sinn í byrjun raðarinnar.

Vísan hljómar svo:

Úllen dúllen doff kikke lane koff koffe lane bikke bane úllen dúllen doff.

Getur þú sagt hvaða vinur verður fyrir valinu?

Inntak

Inntak er tvær línur. Fyrri línan inniheldur eina heiltölu $1 \leq n \leq 100$, fjöldi vina. Seinni línan inniheldur nöfn vina hans Stefáns, aðskilin með bili. Nöfnin eru einstök, innihalda einungis enska bókstafi og hvert nafn er í mesta lagi $10$ bókstafir.

Úttak

Skrifaðu út nafnið á vininum sem verður fyrir valinu.

Stigagjöf

Hópur

Stig

Takmarkanir

1

100

Engar frekari takmarkanir

Sample Input 1 Sample Output 1
6
Arnar Atli Bjarni Bjarki Hannes Unnar
Arnar
Sample Input 2 Sample Output 2
15
Z X Y A B C P Q R S T U V W O
V