Problem E
Tarot Póker
Languages
en
is

Konráði var boðið að spila póker með KFFÍ (KeppnisForritunar Félagi Íslands), en Atli var löngu búinn að sníkjast til að búa til algrím sem spilar póker fullkomlega. Til að reyna koma í veg fyrir svindl þá dró Konráð fram sataníska tarot spilastokk sinn og samdi nýja útgáfu af póker á staðnum, til þess að Atli gæti ekki svindlað með gamla forritinu sínu. Þá vaknar spurningin, er virkilega siðferðislega rétt að hjálpa Atla að svindla áfram? Því miður þýðir lítið að velta sér upp úr því, Atli var svo slunginn að bara það inn í keppnisforritunarverkefni, svo það er ekki annað í boði en að svindla fyrir hans hönd ef menn vilja fá stig í keppninni.
Nýju reglurnar eru sem fylgir. Tarot stokkurinn inniheldur
22 háspil, þau eru númeruð frá núll upp í tuttugu-og-einn og
táknuð með rómverskum stöfum (nema
Þegar verið er að bera saman stök spil þá telst XXI hæst, svo fer það niður í O í þeirri röð. Öll háspilin eru sem sagt hærri
en öll lágspilin. Meðal lágspilanna telst K hæst, svo D, svo
R, svo G og
loks tölurnar frá
Háspilin eru ekki með neina sort, en eru samt með gildi. Því
til dæmis ef spilari er með eitt háspil á hendi telst það
sjálfkrafa sem hæsta spil í hendi. Háspil og jóker geta einnig
myndað par sem er hærra en öll pör af lágspilum. Hins vegar er
aldrei hægt að mynda lit með háspil því háspil teljast ekki
vera af neinni sort. En háspil geta myndað pör, fullt hús og
allt sem hefur aðeins með gildi að gera. Enn fremur ef há- og
lágspil eru með sömu tölu á, t.d. M4
og IV kallast gildin hliðstæð.
Athugum að gosar, riddarar, drottningar og kóngar eru ekki
hliðstæð neinum háspilum því þau hafa enga tölu á. Hins vegar
er gildið
Eftirfarandi samsetningar af spilum teljast góðar, með bestu samsetninguna efst og verstu neðst. Jafntefli eru leyst með því að bera saman hæsta spil handanna, af þeim sem mynda samsetninguna. Ef þau eru jöfn eru næst hæstu spil hvorrar hendi borin saman af þeim sem mynda samsetninguna, og svo framvegis. Ef þau eru öll eins þá eru hæstu spil handarinnar utan samsetningarinnar borin saman. Eins ef þau eru eins er næst hæsta spil utan samsetningarinnar skoðað, og þar fram eftir götunum.
Sæti |
Heiti |
Myndun |
1 |
Fimm eins |
Fimm spil af sama gildi. |
2 |
Engin lágspil |
Fimm háspil. |
3 |
Litaröð |
Fimm spil í röð af sömu sort. |
4 |
Fjölbreytni |
Fjögur lágspil af ólíkum sortum og eitt háspil. |
5 |
Stórt summuhús |
Fjögur lágspil og háspil hliðstætt summu þeirra. |
6 |
Hliðstætt hús |
Fjögur lágspil af sama gildi og hliðstætt háspil. |
7 |
Summuhús |
Þrjú lágspil og háspil hliðstætt summu þeirra. |
8 |
Töluleysa |
Fimm spil án tölu á, þ.e. G, R, D, K. |
9 |
Ferna |
Fjögur spil af sama gildi. |
10 |
Fullt hús |
Þrjú spil af sama gildi, og tvö önnur spil af sama gildi. |
11 |
Litur |
Öll fimm spil af sömu sort. |
12 |
Röð |
Fimm spil í röð. |
13 |
Tvær hátvennur |
Tvö pör af hliðstæðu há- og lágspili. |
14 |
Tvenna og hátvenna |
Par með sama gildi og par af hliðstæðu há- og lágspili. |
15 |
Hátvenna |
Par af hliðstæðu há- og lágspili. |
16 |
Þrenna |
Þrjú spil af sama gildi. |
17 |
Tvær tvennur |
Tvö pör af spilum með sama gildi. |
18 |
Tvenna |
Par af spilum með sama gildi. |
19 |
Engin háspil |
Fimm lágspil. |
20 |
Hátt spil |
Hæsta spil á hendi myndar mynstrið. |
Inntak
Inntakið mun innihalda tvær línur. Hver lína inniheldur fimm spil, aðskilin með bilum. Fyrri línan gefur spilin hans Konráðs og seinni línan gefur spilin hans Atla. Athugið að sama spil getur komið oftar en einu sinni fyrir í inntaki.
Úttak
Prentaðu fyrst tvær tölur, sæti sem hendi Konráðs fær í töflunni að ofan í besta falli og sæti sem hendi Atla fær í töflunni að ofan í besta falli. Skrifaðu svo út hvor vinnur á næstu línu, þ.e. prentaðu Konrad ef Konráð vinnur, Atli ef Atli vinnur og Jafntefli annars.
Stigagjöf
Hópur |
Stig |
Takmarkanir |
1 |
40 |
Engir jókerar, engin háspil. |
2 |
40 |
Engir jókerar. |
3 |
20 |
Engar frekari takmarkanir. |
Sample Input 1 | Sample Output 1 |
---|---|
SR V10 B10 BR MR B1 BR BK B2 B7 |
10 11 Konrad |
Sample Input 2 | Sample Output 2 |
---|---|
B1 M1 M7 V9 S1 VI M6 M6 VII M7 |
16 13 Atli |
Sample Input 3 | Sample Output 3 |
---|---|
SD SK J J J SR SG J J J |
3 3 Jafntefli |