Jörmunrek vantar að flytja millilítra af vatni milli staða.
Til þess ætlar hann að smíða sér vatnstank. Þar sem hann er
ekki sérstaklega reyndur smiður ætlar hann einfaldlega að líma
saman 6 plötur, bora gat og líma á það handfang. Þar sem honum
er illa við ræðar tölur (og enn verr við rauntölur) vill hann
að allar hliðarlengdir innan í kassanum séu heiltölufjöldi
sentimetra. Þar sem hann er að smíða vatnskubb en ekki
vatnsplötu vill hann ennfremur að engin hlið sé einn
sentimetri. Til áminningar þá er einn rúmsentimetri nákvæmlega
einn millilítri. Til að geta sett handfangið fyrir miðju var
hann því að velta fyrir sér hvort hann geti valið
hliðarlengdirnar þannig að tvær þeirra séu jafnar. Getur þú
hjálpað honum?
Inntak
Inntakið inniheldur eina heiltölu ,
millilítrafjölda tanksins.
Úttak
Ef hægt er að smíða tankinn með tvær hliðar jafnar, prentið
Gengur!. Ef ekki, prentið Vonlaust!.
Sample Input 1 |
Sample Output 1 |
105
|
Vonlaust!
|
Sample Input 2 |
Sample Output 2 |
147
|
Gengur!
|