Problem G
Heimavinna
Languages
en
is
ja

Hneitir er menntaskólanemandi, en það þýðir að hann þarf að sinna heimavinnu fyrir hinar ýmsu námsgreinar. Hneitir er ekki latur, en honum leiðist að læra heima, sérstaklega fyrir efnafræði. Á morgun verður hann tekinn upp á töflu, þar sem hann á að leysa dæmin sem honum er sett fyrir. Gallinn er að hann veit ekki hvaða dæmi hann á að gera upp á töflu því efnafræðikennarinn hans, Ormhildur, á það til að sleppa því að fara yfir stöku dæmi, til þess að flýta yfirferðinni. Það sem verra er, Hneitir hefur verið að fresta því að leysa dæmin og því eru fjölmörg dæmi sem hann þarf að leysa fyrir morgundaginn.
Hvað þarf Hneitir að leysa mörg dæmi?
Inntak
Inntakið er ein lína og tiltekur þau dæmi sem Hneitir þarf
að leysa. Hneitir þarf alltaf að leysa í minnsta lagi eitt
dæmi. Dæmin eru númerið frá
Úttak
Skrifaðu út eina línu með einni heiltölu
Stigagjöf
Hópur |
Stig |
Takmarkanir |
1 |
25 |
Dæmin eru öll á einu bili, t.d. 3-10 |
2 |
25 |
Engin tvö dæmi eru samliggjandi, t.d. 1;3;5;8;13 |
3 |
50 |
Engar frekari takmarkanir |
Sample Input 1 | Sample Output 1 |
---|---|
1-3;5;7;10-13 |
9 |
Sample Input 2 | Sample Output 2 |
---|---|
3-10 |
8 |
Sample Input 3 | Sample Output 3 |
---|---|
1;3;5;8;13 |
5 |