Problem D
Eiginnöfn
Languages
en
is

Flestir Íslendingar eru annaðhvort með eitt eða tvö eiginnöfn. Þau sem eru með tvö eiginnöfn eru oftast ávörpuð einungis með fyrra eiginnafninu, en ekki seinna. Foreldrar þeirra eiga samt til að bregðast harkalega við þessu. Þegar foreldrar Arnars voru spurðir hvort Arnar væri heima var svarið sjaldan einfalt já eða nei. Í staðin var svarað: ,,Nei, en Arnar Bjarni er heima.“
Nú er búið að setja upp nýja snjalldyrabjöllu á heimilinu þar sem gestir geta skrifað nafnið á manneskjunni sem verið er að heimsækja. Það eru samt áhyggjur yfir því að þetta sé ópersónuleg lausn og er ekki vilji fyrir að missa sjarmann og skemmtunina sem fólk upplifir frá foreldrabröndurum. Því geymir dyrabjallan öll eiginnöfn hvers íbúa en í heimsóknarvalmyndinni er aðeins hægt að skrifa inn eitt eiginnafn til að spyrja eftir íbúa. Dyrabjallan svarar þá hvort að íbúinn sé heima eins og foreldrar Arnars gerðu. Ef íbúinn er með eitt eiginnafn og er heima, þá er svarað játandi. Ef íbúinn er með tvö eiginnöfn og er heima, þá er svarað neitandi, en leiðrétt að manneskja með báðum eiginnöfnum íbúans sé heima. Ef íbúinn er ekki heima að þá er svarað neitandi.
Inntak
Inntak hefst á línu með einni heiltölu
Svo kemur lína með einni heiltölu
Gera má ráð fyrir að engir tveir íbúar eigi sama fyrra
eiginnafn. Sérhvert eiginnafn byrjar á stórum staf og næst
fylgja litlir stafir. Hver einasti stafur í eiginnöfnunum er í
enska stafrófinu. Eiginnöfn eru í mesta lagi
Úttak
Svara skal hverri fyrirspurn á eftirfarandi máta í sömu röð og fyrirspurnir koma fyrir í inntaki. Ef íbúinn er ekki heima skal skrifa út Neibb. Ef íbúinn er heima og hefur ekki seinna eiginnafn skal svara Jebb. Ef íbúinn er heima og hefur tvö eiginnöfn skal svara á forminu Neibb en <bæði eiginnöfn> er heima.
Stigagjöf
Hópur |
Stig |
Takmarkanir |
1 |
10 |
Sérhver íbúi hefur eitt eiginnafn og |
2 |
10 |
Sérhver íbúi hefur tvö eiginnöfn og |
3 |
20 |
|
4 |
20 |
Sérhver íbúi hefur eitt eiginnafn og |
5 |
20 |
Sérhver íbúi hefur tvö eiginnöfn og |
6 |
20 |
|
Sample Input 1 | Sample Output 1 |
---|---|
6 Atli Hannes Arnar Bjarki Unnar Konrad 6 Joi Bjarki Agust Freyr Unnar Atli |
Neibb Jebb Neibb Neibb Jebb Jebb |
Sample Input 2 | Sample Output 2 |
---|---|
6 Atli Fannar Hannes Kristjan Arnar Bjarni Bjarki Agust Unnar Freyr Konrad Eli 5 Eli Bjarki Agust Unnar Atli |
Neibb Neibb en Bjarki Agust er heima Neibb Neibb en Unnar Freyr er heima Neibb en Atli Fannar er heima |
Sample Input 3 | Sample Output 3 |
---|---|
4 Arnar Bjarni Gunnlaugur Heidrun Groa Orn 6 Arnar Bjarni Gunnlaugur Heidrun Sofia Orn |
Neibb en Arnar Bjarni er heima Neibb Jebb Neibb en Heidrun Groa er heima Neibb Jebb |