Problem B
Hreyfa
Languages
en
is
Skrifið forrit sem spyr notandann fyrst um staðsetningu sýndarveru á x-ás í hnitakerfi og gerir síðan kleift að færa sýndarveruna til hægri eða vinstri sem gefið er til kynna með stöfunum r eða l. Notandinn á að geta fært sýndarveruna eins oft og hann vill en ef inntakið er hvorki r né l þá hættir forritið keyrslu. Ný staðsetning sýndarverunnar og leiðbeiningar fyrir notandann eru skrifaðar á skjáinn í hverri ítrun eftir inntak r eða l
Leyfilegt bil á $x$-ásnum, sem sýndarveran getur ferðast eftir, er frá $1$ til $10$. Ef sýndarveran er þegar staðsett á öðrum enda bilsins þá færist hún ekkert þegar reynt er að færa hana út fyrir bilið.
Frekari upplýsingar um útfærsluna:
-
Ef upphafsstaða sýndarverunnar er ekki á milli $1$ og $10$ þá skal forritið spyrja notandann aftur þangað til upphafsstaðan er gild.
-
Núverandi staða sýndarverunnar er sýnd með o en aðrar stöður á $x$-ásnum eru sýndar með x.
-
Útfæra á tölurnar $1$ og $10$ og stafina r og l með föstum. Fasti í Python er breyta hvers gildi á ekki að breytast í keyrslu forritsins. Góð regla er að nota hástafi fyrir nöfn á föstum.
-
Þið eigið að nota föll í útfærslunni. Það er í lagi að aðalforritið ykkar innihaldi lykkjuna en meginmál lykkjunnar á að mestu að vera framkvæmt með fallaköllum.
Stigagjöf
Hópur |
Stig |
Takmarkanir |
1 |
10 |
Engar ógildar upphafsstaðsetningar og engar hreyfingar framkvæmdar. |
2 |
10 |
Engar hreyfingar framkvæmdar. |
3 |
10 |
Engar ógildar upphafsstaðsetningar, aðeins vinstri hreyfingar og aldrei reynt að fara út af jaðrinum. |
4 |
10 |
Engar ógildar upphafsstaðsetningar, aðeins hægri hreyfingar og aldrei reynt að fara út af jaðrinum. |
5 |
10 |
Engar ógildar upphafsstaðsetningar, aldrei reynt að fara út af jaðrinum. |
6 |
10 |
Engar ógildar upphafsstaðsetningar, aðeins vinstri hreyfingar. |
7 |
10 |
Engar ógildar upphafsstaðsetningar, aðeins hægri hreyfingar. |
8 |
10 |
Engar ógildar upphafsstaðsetningar. |
9 |
10 |
Aldrei reynt að fara út af jaðrinum. |
10 |
10 |
Engar frekari takmarkanir. |
Read | Sample Interaction 1 | Write |
---|
Position in [1..10]:
0
Position in [1..10]:
11
Position in [1..10]:
7
xxxxxxoxxx l: left r: right Move:
r
xxxxxxxoxx l: left r: right Move:
r
xxxxxxxxox l: left r: right Move:
l
xxxxxxxoxx l: left r: right Move:
r
xxxxxxxxox l: left r: right Move:
r
xxxxxxxxxo l: left r: right Move:
r
xxxxxxxxxo l: left r: right Move:
q