Hide

Problem A
Löggeng endanleg stöðuvél - Lestur

Accepted submissions to this problem will be granted a score of 12
Languages en is

Þér er gefin löggeng endanleg stöðuvél og lista af strengjum. Fyrir hvern streng í listanum átt þú að ákvarða hvort stöðuvélin samþykkir eða hafnar strengnum.

Inntak

Fyrsta lína inntaksins inniheldur fjórar jákvæðar heiltölur n, c, s og f þar sem n er fjöldi staða, c er stærð stafrófsins, s er upphafsstaðan og f er fjöldi lokastaða. Önnur línan inniheldur streng Σ=Σ1Σ2Σc sem samanstendur af c ólíkum táknum sem eru allt ASCII lágstafir. Þriðja línan inniheldur f ólíkar jákvæðar heiltölur, mengi lokastaða stöðuvélarinnar. Næst fylgja n línur, hver með c jákvæðum heiltölum, sem gefa stöðuskiptatöfluna. Sem sagt, j-ta talan á i-tu línu gefur stöðuna sem stöðuvélin fer í ef hún var í stöðu i og las inn stafinn Σj.

Hver staða er táknuð með heiltölu frá 1 til n. Gefið er að nc100022, 1sn og 0fn.

Á eftir þessum gögnum kemur lína með heiltölu m, fjöldi strengja sem á að skoða, þar sem 1m100000. Loks fylgja m línur, hver með einum streng sem á að skoða. Hver strengur er 0 til 100000 stafir að lengd og heildarlengd allra strengja í inntaki er mest 100000. Strengirnir munu aðeins innihalda stafi úr stafrófinu Σ.

Úttak

Fyrir hvern streng sem á að skoða skal prenta eina línu sem inniheldur annað hvort accept eða reject eftir því hvort strengnum var samþykkt eða hafnað.

Sample Input 1 Sample Output 1
3 2 1 1
ab
1
1 2
1 3
3 3
6

a
aa
ab
abba
aabaababa
accept
accept
accept
reject
reject
accept
Sample Input 2 Sample Output 2
1 4 1 0
acgt

1 1 1 1
3

agaga
gattaca
reject
reject
reject
Hide

Please log in to submit a solution to this problem

Log in