Hide

Problem I
Löggeng endanleg stöðuvél - Er tóma málið?

Accepted submissions to this problem will be granted a score of 12
Languages en is

Þú færð endanlega löggenga stöðuvél gefna sem samþykkir málið L. Þú átt að prenta hvort L sé tóma málið.

Inntak

Fyrsta lína inntaksins inniheldur fjórar jákvæðar heiltölur n, c, s og f þar sem n er fjöldi staða, c er stærð stafrófsins, s er upphafsstaðan og f er fjöldi lokastaða. Önnur línan inniheldur streng Σ=Σ1Σ2Σc sem samanstendur af c ólíkum táknum sem eru allt ASCII lágstafir. Þriðja línan inniheldur f ólíkar jákvæðar heiltölur, mengi lokastaða stöðuvélarinnar. Næst fylgja n línur, hver með c jákvæðum heiltölum, sem gefa stöðuskiptatöfluna. Sem sagt, j-ta talan á i-tu línu gefur stöðuna sem stöðuvélin fer í ef hún var í stöðu i og las inn stafinn Σj.

Hver staða er táknuð með heiltölu frá 1 til n. Gefið er að n10000, 1sn og 0fn.

Úttak

Prentið empty ef L er tóma málið, prentið annars non-empty.

Sample Input 1 Sample Output 1
3 2 1 1
ab
2
2 3
3 2
3 3
non-empty
Sample Input 2 Sample Output 2
2 4 1 1
acgt
2
1 1 1 1
1 2 2 1
empty
Hide

Please log in to submit a solution to this problem

Log in