Hide

Problem D
Löggeng endanleg stöðuvél - Sniðmengi

Languages en is

Þú færð tvær endanlegar löggengar stöðuvélar gefnar sem samþykkja málin $\mathcal{L}_1$ og $\mathcal{L}_2$. Þú átt að prenta sniðmengið, endanlega löggenga stöðuvél sem samþykkir málið $\mathcal{L} = \mathcal{L}_1 \cap \mathcal{L}_2$.

Inntak

Inntakið inniheldur lýsingu á tveimur endanlegum löggengum stöðuvélum með sama stafróf. Hverri þeirra er lýst sem fylgir.

Fyrsta línan inniheldur fjórar jákvæðar heiltölur $n$, $c$, $s$ og $f$ þar sem $n$ er fjöldi staða, $c$ er stærð stafrófsins, $s$ er upphafsstaðan og $f$ er fjöldi lokastaða. Önnur línan inniheldur streng $\Sigma = \Sigma _1 \Sigma _2 \dots \Sigma _c$ sem samanstendur af $c$ ólíkum táknum sem eru allt ASCII lágstafir. Þriðja línan inniheldur $f$ ólíkar jákvæðar heiltölur, mengi lokastaða stöðuvélarinnar. Næst fylgja $n$ línur, hver með $c$ jákvæðum heiltölum, sem gefa stöðuskiptatöfluna. Sem sagt, $j$-ta talan á $i$-tu línu gefur stöðuna sem stöðuvélin fer í ef hún var í stöðu $i$ og las inn stafinn $\Sigma _j$.

Hver staða er táknuð með heiltölu frá $1$ til $n$. Gefið er að $1 \leq s \leq n$ og $0 \leq f \leq n$.

Táknum fjölda staða í stöðuvélunum tveimur með $n_1$ og $n_2$. Þá mun inntakið uppfylla $n_1 \cdot n_2 \cdot c \leq 300\, 000$.

Úttak

Prentið hvaða endanlegu löggengu stöðuvél sem er sem samþykkir sniðmengi mála inntaksvélanna. Úttak þitt á að vera á sama formi og inntakið og á að uppfylla sömu takmörkunum og inntakið, nema hún má vera stærri. Hún þarf að uppfylla $n \cdot c \leq 300\, 000$.

Sample Input 1 Sample Output 1
3 2 1 1
ab
1
1 2
1 3
3 3
4 2 1 1
ab
3
2 4
4 3
3 3
4 4
5 2 5 1
ab
2
1 1
2 3
2 1
1 3
4 1
Sample Input 2 Sample Output 2
1 4 1 0
acgt

1 1 1 1
1 4 1 1
acgt
1
1 1 1 1
1 4 1 0
acgt

1 1 1 1