Hide

Problem A
Hæg földun

Languages en is

Inntakið mun gefa þér tvær margliður. Þú átt einfaldlega að prenta út margfeldi þeirra.

Inntak

Fyrsta lína inntaksins inniheldur tvær jákvæðar heiltölur $n, m$, fjöldi gefna stuðla í hvorri margliðu. Næstu tvær línur innihalda svo eina margliðu hvor. Hver margliða er gefin sem stuðlar hennar í vaxandi röð, það er að segja ef inntakið er a0 a1 a2 a3 þá er verið að gefa margliðuna $a_0 + a_1 x + a_2 x^2 + a_3 x^3$. Gefið er að $n, m \leq 10^3$ og að allir stuðlar $a_i$ uppfylli $-10^9 \leq a_i \leq 10^9$.

Úttak

Prentið margfeldi margliðanna í inntakinu á sama formi og margliðurnar í inntakinu. Sleppið öllum auka núllum aftast, það er að segja ef aftasta talan er núll á að sleppa henni nema ef hún er eina talan í úttakinu.

Sample Input 1 Sample Output 1
3 4
1 2 3
4 5 6 7
4 13 28 34 32 21
Sample Input 2 Sample Output 2
3 1
1 2 3
0
0